Ég er lélegur bloggari ég veit. Málið er bara, að ég veit
aaaaldrei um hvað ég á að blogga. Dæmigerð afsökun já. Ég er bara
búin að blogga svona eitt blogg á mánuði síðan þessi blessaða síða
hófst. Eeeen ég ætla svona aaaðeins að reyna að bæta úr því.
Í dag eru 8 dagar þangað ég er að fara til Frakklands og ég er ekki
frá því að öööörlítill kvíðahnútur sé kominn til að vera í
mallakútnum, en það er nú svosem alveg eðlilegt. Já, það er búið að
ganga frá um 98% af því sem þarf að ganga frá, ég komin með miðana
og alles og bíð nú bara spennt og kvíðin eftir að þetta fari að
skella á allt saman. Ég hlakka sko ekki til þess að fara að pakka,
það er nú ekki alveg sanngjarnt að maður megi bara taka með sé 20
kíló. Yes, ég fer semsagt 8 október, fer suður 7.
Danmörk var æði. Vá mig langar aftur. Veðrið var yndislegt, næstum
30° alla daga og það var så skönt så skönt så skönt. Við vorum
alltaf að, gerðum eitthvað skemmtilegt alla daga, það var farið í
Tívóli, á Bakken, í Legoland, til Svíþjóðar, í kastala og auðvitað
kíkt á leikskólann, grunnskólann, skóladagheimilið, Gyldenrisvej,
Dalslandsgade og auðvitað var verslað.
Finnland var æði. Það eru bara tré í Finnlandi, útum allt,
tré. Og vötn. Gaman gaman gaman að hitta Mari á ný. Fyrsta
kvöldið fórum við á bestu tónleika í heiminum með Zen Café
í Oulu. Elska Zen Café. Við fórum frá Oulu til Jyvaskyla
á sunnudeginum eftir að hafa kynnst djammlífinu í Oulu, sem er bara
alls ekki svo slæmt. Jyvaskyla er semsagt bærinn sem Mari býr í og
vorum við þar frá mán-föst svo hún gæti farið í skólann. Þar var nú
samt ekki svo mikill skóli sem hún þurfti að fara í. Í mesta lagi 2
tímar á dag, oftast á morgnana þannig að ég var bara sofandi hvort
sem er. Þar gerðum við ýmislegt, sumt sem við höfðum ekki gert áður
og sumt sem við höfðum. Kíktum á íshokkíleik. Það var gaman, það
voru meiriaðsegja alvöru klappstýrur sem dönsuðu.
Við fórum í bingo, það var fyndið. Ég reyndar skildi ekki
neitt þar sem allt var á finnsku og gömul kelling öskraði á mig
fyrir að taka mynd af sér, sem ég gerði ekki. Svo fórum við í
keilu, versluðum smá og eitthvað meira. Jyvaskyla er
skemmtilegur bær og ég væri alveg til í að búa þar. Það er
einhvernveginna allt sem maður þarf þar, allar bestu búðirnar, mjög
góðir barir. En samt er bærinn ekki of stór. Við fórum á bar þar
sem maður þurfti að borga 3 evrur fyrir að fara inn (250 kr) og á
barnum var svo hægt að velja um stóran bjór, longdrink (líkt
smirnoff ice, samt ekki) og salmariskot (hot n' sweet) fyrir bara 1
evru (90 kr). Það er rugl. Maður kaupir bara og kaupir og kaupir.
Fáranlega ódýrt.
Á föst fórum við svo til Hameenlinna og gistum eina nótt í
Lapaa hjá Elli, vinkonu Mari. Sérstakur staður. Á laug var svo
loksins haldið til Helsinki. Helsinki er æði og við skemmtum okkur
svo vel þar. Vorum algjörur túristar og kíktum á söfn, fórum til
Soumenlina og kíktum í pikk-nikk þar og seinasta kvöldið var
pöbbarölt málið.
Semsagt, mjööög skemmtileg ferð sem verður pottþétt endurtekin
seinna.
Lítið drífur á daga mína um þessar mundir. Mér finnst
nú samt að ég ætti að fara að hitta ykkur svona áður en ég fer. Við
ættum nú aðeins að kíkja út eitt kvöld..hmm...er það ekki...
Hérna kom það, leiðinlegt blogg um ferðina mína. Njótið
vel...
HD